Laugavegur 168 (801), 105 Reykjavík (Austurbær)
340.000.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
4 herb.
208 m2
340.000.000
Stofur
2
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
3
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2024
Brunabótamat
0
Fasteignamat
50.400.000

Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 og Jason Kristinn fasteignasali sími 775 1515 kynnir: Glæsilega íbúð á efstu hæð við Heklureitinn. Laugavegur 168, íbúð 801. Skráð samtals 208,7 fm og skiptist í 192,5 fm íbúð, með öllum þægindum sem hægt er að hugsa sér. Íbúðinni tilheyrir 16,2 fm sérgeymsla og 2 stæði í bílageymslu. Efsta hæðin á Heklureitnum.

Kynningarbæklingur fyrir þakíbúðirnar

Glæsileg horníbúð á besta stað með glæsilegu óheftu útsýni, sérstaklega yfir borgina til suðurs og vesturs og einnig til fjalla og sjávar til norðurs og austurs. Rúmgóð íbúð með tvennum þaksvölum þar sem gert er ráð fyrir heitum potti á 12,7 fm vestursvölum. Þakgarður til suðurs sem er 25,3 fm, þar sem útgengt er úr borðstofu. Innaf eldhúsi er búr. Gert er ráð fyrir arni í stofu. Glæsileg hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi og að auki er annað herbergi með sér baðherbergi og fataherbergi. Gólfhiti er í íbúðinni. Sér þvottahús auk gestasnyrtingar. Geymsla og tvö bílastæði, nr. B01 og B02 fylgja eigninni.

Í eldhúsi verður eyja, borðplötur ásamt bakplötu úr Quarts steini, sérframleiddur frá Santamargherita á Ítalíu. Vönduð tæki frá Siemens, sem koma úr StudioLine gerðinni en hún býður uppá úrval glæsilegra tækja sem gera eldamennskuna sérlega þægilega og ánægjuríka. Öll tæki hvort sem er fyrir eldhús eða baðherbergi eru valin með tilliti til gæða og endingar. 

Hafstudio og Studio Homestead koma að hönnun innréttinga og eru þær sérsmíðaðar af ítalska fyrirtækinu Cubo Design úr Miton línunni þeirra. Kaupendur hafa tækifæri til að velja mismunandi liti og áferðir fyrir innréttingar sem og flísar á baðherbergi, komi þeir tímanlega að borði. 
Íbúðirnar á efri hæðum, hafa einstakt útsýni til fjalla og yfir borgina. 
Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt Bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds. 

Miðlæg staðsetning tryggir gott aðgengi að helstu umferðaræðum sem sparar tíma og peninga. 
Örstutt er í helstu stofnbrautir eins og Sæbraut, Kringlumýrabraut og Miklubraut. 
Afhending miðast við september 2025

Heimasíða verkefnis

Bókið skoðun hjá sérfræðingum um eignina: Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 15 15 - löggiltur fasteignasali - [email protected]
 





Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.