HEKLUREITUR, REYKJAVÍK
HEKLUREITUR - REYKJAVÍK

Forsala er hafin á 9 glæsilegum penthouse íbúðum á Heklureitnum í Reykjavík. Íbúðir eru til afhendingar haustið 2025. Eftirsóknarverð staðsetning í miðborginni í göngufæri við ótal veitingastaði, menningarhús og stutt að renna sér inn á helstu stoðbrautir borgarinnar.

Íbúðir eru með einstaklega rúmum þakgörðum og frábæru útsýni. Fágun í hönnun tryggir þægindi og rými fyrir lifandi lífstíl. Íbúðirnar eru búnar sérhönnuðum innréttingum frá hinu þekkta ítalska fyrirtæki Cubo design þar sem einstök fágun ræður ríkjum. Flæði birtu og útsýnis er tryggt með gluggum sem nema við gólf og er aukin lofthæð í íbúðunum. Stærð þakgarðanna gefa óendanlega möguleika og þar er hægt að búa allri fjölskyldunni sannkallaðan yndisreit. Geymslur eru einstaklega rúmar og þessum íbúðum fylgir einkastæði í bílakjallara. Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu og bambus sem gefur því lifandi yfirbragð. Einkar fallegar íbúðir þar sem fágun og gæði voru höfð að leiðarljósi við alla hönnun.

Skilalýsing

Skilalýsing þakgarðaíbúða á Heklureitnum.

Sækja skilalýsingu
Myndir