Meðalbraut 10, 200 Kópavogur
188.800.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
8 herb.
276 m2
188.800.000
Stofur
3
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
1977
Brunabótamat
109.160.000
Fasteignamat
148.850.000

Betri Stofan og Jason Kristinn sími 775 1515 kynnir: Meðalbraut 10, 200 Kópavogi er rúmlega 270 fm mikið endurnýjað einbýlishús á Kársnesinu. Húsið er á skjólgóðum stað og mjög lítil umferð er í götunni. Eignin skráð 256,8 fm skv. HMS en er í raun stærri eftir stækkun um bílskúr.
Sundlaug í næsta nágrenni. Möguleiki á aukaíbúð með sérinngangi. 
Bókið skoðun í netfangið [email protected] - eða í símanúmerið 775 1515

Nánari lýsing:
Anddyri: flísalagt með gólfhita. 
Gestasnyrting/geymsla.
Stórar fallegar flísar frá Birgison eru á alrými, gangi, stofu og eldhúsi. Parket í herbergjum.
Herbergjagangur með þremur svefnherbergjum. Aðalsvefnherbergið er með fataherbergi innaf. 
Baðherbergi er flísalagt og með hita í gólfi. Sturtuklefi og baðkar. 
Alrýmið er rúmgott og bjart. 
Eldhúsið er með mjög góðu skápaplássi, steinn á borðplötu, nýleg uppþvottavél, pláss fyrir tvöfaldan ísskáp. Hægt er að ganga út í garð til norðurs.
Stofa með góðri lofthæð. Ný rennihurð út á skjólgóðan og afgirtan pall sem snýr í suður og vestur. Á pallinum er stór heitur pottur frá Trefjum.
Arinn í stofu. 

Neðri hæð: gengið niður vandaðan teppalagðan stiga. Sjónvarps- og íþróttaherbergi. Skipt hefur verið um nokkra ofna. Stór geymsla með minni lofthæð. 
Stórt hobbýherbergi með plássi fyrir ýmis leiktæki. 
Þvottahús sem hægt væri að breyta til að fá sér inngang á austur hlið hússins. Baðherbergi og stórt svefnherbergi. 
Geymslur og bílskúr eru einnig á neðri hæðinni.
 
Aukaupplýsingar:
Ytra byrði:
- Jarðvegsskipti og nýtt dren norðan og austan við húsið.
- Byggður inngangur fyrir neðri hæð ef útbúin yrði sér íbúð á neðri hæð (var þannig áður en innangengt þar sem nú er bílskúr).
- Hellulögð aðkoma að húsinu og bílastæði stækkað. Hiti í aðkomu og bílastæði.
- Múrviðgerðir sumarið 2022, húsið málað.
- Pallar endurnýjaðir og stækkaðir beggja vegna hússins og heitur pottur (2015).
- Nýr hattur á skorstein.
 Húsið er steypt en þó þannig að neðri hlutinn er hefðbundinn uppsteypa en efri hæðin eru steyptar einingar.
Innra byrði: Mikil endurnýjun á öllu húsinu.
Efri hæð:
- Nýtt eldhús og baðherbergi (2013)
- Innihurðir endurnýjaðar sem og gólfefni.
- Loft og veggir lagaðir og gifsplötur settar yfir veggi og loft.
- Nýr útgangur út á suðurpall
- Stigi niður á neðri hæð.
- Gólfhiti í alrými (stofa, gangur, eldhús, anddyri)
- Raflagnir mjög mikið endurnýjaðar sem og vatnslagnir
- Nýjir ofnar í svefnherbergi
- Arinn endurbyggður
 -- > Efri hæðin var nánast fokheld og endurbyggð.
Neðri hæð (2013-2014):
- Íbúð á neðri hæð var tengd við efri hæðina.
- Porti undir húsinu var lokað og breytt í bílskúr.
- Útbúið sjónvarpsherbergi úr bílskúrnum (mögulega hægt að útbúa herbergi)
- baðherbergi endurnýjað og útbúið þvottahús
- Gólfefni endurnýjað.
- stór hluti raflagna endurnýjaður sem og stór hluti vatnslagna.
 
Mikið endurnýjað einbýlishús á vinsælum stað. Seljandi mun klára lokaúttekt á stækkun fyrir afsal.

Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 15 15 - löggiltur fasteignasali - [email protected]
 





Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.