Betri Stofan fasteignasala, Borgartúni 30 kynnir nýtt í einkasölu: Rúmgóð og björt efri sérhæð ásamt bílskúr á frábærum stað við miðbæinn á Selfossi. Eignin er mikið endurnýjuð og getur verið laus fljótlega, núverandi skipulag: forstofa, stigi, stórt opið stofu og eldhúsrými, tvö stór svefnherbergi og stórt baðherbergi ásamt 45 fm bílskúr sem hefur verið endurbyggður en er óinnréttaður - möguleiki að standsetja útleiguíbúð. Skipti á ódýrari fasteign skoðuð. Eignin getur verið laus strax.
Allar nánari upplýsingar veitir Atli fasteignasali í síma 822-1661 eða
[email protected]Nánari lýsing:Sér inngangur, anddyri er flísalagt, timburstigi.
Rúmgóð
stofa/borðstofa í björtu opnu og rými með paketi á gólfi.
Eldhús er bjart með góðri innréttingu, hálf opið við stofu rýmið.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum, gluggar á tvær hliðar, parket á gólfi.
Svefnherbergi II og gluggum á tvo vegu. Parket á gólfi.
Endurnýjað og rúmgott
baðherbergi með sturtu, innréttingu með handlaug, upphengt wc og tengi fyrir þvottavél.
Geymsluloft yfir íbúð, lúga í stofu.
Bílskúr hefur verið endurbyggður frá grunni, enn er óinnréttaður - gert ráð fyrir
möguleika á 2ja herb. útleiguíbúð.Húsið stendur á
stórri lóð með mikla möguleika.
Hægt er að semja um kaup á hluta af
innbúi: nýlegt 75" sjónvarp, þvottavél, þurrkara, sófi, rúm ofl.
Frábær staðsetning, rétt við hótel Selfoss, Selfosskirkju, nýjan miðbæ og í göngufæri við alla verslun og þjónustu.
Eignin er mjög mikið endurnýjuð: endurbætur á árunum 2017-2021 m.a skv. eldri sölugögnum,
nýtt harðparket á stofu/borðstofu, eldhúsi og svefnherbergi, nýir ál/ál gluggar, baðherbergi endurnýjað.
Ofnar og ofnalagnir, raflagnir, tenglar og rafmagnstafla, þak hafði áður endurnýjað
Þetta er mikið endurnýjuð eign á einstökum stað í "101" Selfoss.
Allar nánari upplýsingar veitir Atli fasteignasali í síma 899-1178 eða [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.