Fitjar einbýli , 260 Njarðvík
169.400.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
9 herb.
338 m2
169.400.000
Stofur
3
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
2021
Brunabótamat
165.650.000
Fasteignamat
112.650.000

Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 kynnir nýtt í einkasölu: Nýlegt, vandað og fallegt einbýlishús staðsett innarlega í botnlanga Fitjum Reykjanesbæ. Húsið er tvílyft alls um 340 fm, staðsteypt, einangrað og klætt að utan. Innra skipulag hússins er gott og býður uppá mikla möguleika. Góð sér 2ja herbergja aukaíbúð er á jarðhæð.

Nánari lýsing:
Á efri hæð er í opnu glæsilegu alrými stofa, borðstofa, sjónvarpshol og eldhús, útgengt er bæði á svalir og sólríka baklóð með stórri verönd og steyptum skjólveggjum. Á hæðinni liggja að svefnherbergisgangi þrjú stór svefnherbergi, þvottahús og glæsilegt baðherbergi með útgengi á pottasvæði. 
Á neðri hæð er gott anddyri, baðherbergi, mjög stórt herbergi sem hægt er að stækka enn frekar á kostnað geymslu og þannig mögulegt að útbúa studio-íbúð. Bílskúr er rúmgóður með stórri innkeyrsluhurð.
Sér inngangur er í góða fullbúna 2ja herbergja aukaíbúð.

Húsið er vandað og fallegt. Gólfhiti er í öllum gólfum, fallegar innréttingar, sérsmíðaðar extra háar innihurðir og steinn á borðum.
Gólfefni er parket og flísar. Lýsing er vönduð. Unnið er að minniháttar lokafrágangi á eigninni sem verður lokið fyrir afhendingu.

Þetta er nýlegt og vandað einbýlishús fyrir vandláta.
Allar nánari upplýsingar veitir Atli S. Sigvarðsson fasteignasali í síma 899-1178 eða [email protected]





Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.