Hrólfsskálavör 14, 170 Seltjarnarnes
Tilboð
Einbýli/ Einbýlishús með aukaíbúð
8 herb.
316 m2
Tilboð
Stofur
3
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
1981
Brunabótamat
135.650.000
Fasteignamat
196.250.000

Betri Stofan og Jason Kristinn sími 775 1515 kynnir: Glæsilegt 316 fm einbýlishús við Hrólfsskálavör 14, sjávarlóð, innst í botnlanga, sunnan megin á Seltjarnarnesi.
Samtals. 5 svefnherbergi. 3 baðherbergi. 
Efri hæð: Stór flísalögð forstofa með hita í gólfi, eldhús með Smeg eldavél og háf, búr, borðstofa, stofa með arinn, útgengt úr stofu út á svalir og garð, gengið niður í sólstofu með góðri lofthæð og þaðan er útgengt út á pall með heitum potti og sjávarútsýni.
Svefnherbergjagangur með 3-4 herbergjum: Eru í dag tvö stór svefnherbergi, (hægt að skipta öðru þeirra upp í tvö minni) og einnig er eitt minna herbergi sem er notað sem skrifstofa.
Flísalagt baðherbergi með sturtu og gólfhita.

Neðri hæð: Opið sjónvarpshol, tvö stór herbergi (útgengt úr öðru herberginu út á pall og suður garð í átt að sjónum), þvottahús, baðherbergi með sturtu, stór geymsla og innan gengt í bílskúr/stúdíó íbúð.
Bílskúr/Stúdíó íbúð: Búið er að útbúa um 40 m2 stúdíó íbúð í hluta bílskúrsins (2021) og er inngangur í hana úr bílskúrnum sem og hurð úr garðinum að sunnanverðu. Íbúðin skiptist í svefnrými, stofu, eldhús og baðherbergi með sturtu/þvottahús.  Gólfhiti er í allri íbúðinni og hún flísalögð.  Eldvarnarhurðir eru inn í bílskúrinn.

Viðhald: Húsið var tekið í gegn 2015 og m.a. allar neysluvatnslagnir endurnýjaðar, ný rafmagnstafla, tölvuskápur með netskipti og tenglum í flest herbergi, skipt um gler í gluggum sunnan megin og allt málað.  2021 var settur hljóðdempandi dúkur í loftið í eldhúsi og stofu með Philips Hue ljósakösturum og allt húsið/gluggar málaðir.
Stór pallur með heitum potti var smíðaður árið 2019 og hluti lóðar að framan og að stúdíóíbúðinni hellulagður 2023. 
Einnig er 15 fermetra geymsluskúr í garðinum ásamt niðurgröfnu trampólíni.
Lóðin: Samtals 1.014 fermetra sjávarlóð á sunnanverðu Seltjarnarnesi.
 
Þetta er glæsileg eign á sjávarlóð sem liggur beint að fjöru á einstaklega fallegum og skjólgóðum stað á Seltjarnarnesi. Sjón er sögu ríkari.

Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 15 15 - löggiltur fasteignasali - [email protected]
 





Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.