BJARKARHOLT, MOSFELLSBÆR
BJARKARHOLT - MOSFELLSBÆR

Glæsilegar nýbyggingar á frábærum stað í hjarta Mosfellsbæjar. Um er að ræða 58 íbúðir í tveimur íbúðareiningum. Stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir og skóla. Bjarkarholt er á miðpunkti hjarta Mosfellsbæjar. Stutt er í helstu þjónustu, verslanir, veitingastaði, íþróttasvæði og útivistarsvæði, skóla og sundlaugar.

Í Bjarkarholti 17 - 19 eru tvö falleg fimm hæða hús með alls 58 íbúðum, auk bílakjallara og sameiginlegum garði.

 

Í húsinu við Bjarkarholt 17 eru 29 íbúðir í einu lyftu/stigahúsi. Ein íbúð er stúdió íbúð að stærð 42,7 fm en aðrar íbúðir eru 2 – 4 herbergja, frá 57,5 fm – 120,2 fm.

Allar íbúðir hafa svalir eða sérafnotareit.


Í húsinu við Bjarkarholt 19 eru 29 íbúðir, eitt lyftu/stigahús. Ein íbúð er stúdió íbúð að stærð 42,6 fm en aðrar íbúðir eru 2 - 3 herbergja, frá 67,5 fm – 112,7 fm. Allar íbúðir hafa svalir eða sérafnotareit.

Arkform sá um hönnun hússins og HAF studíó sá um innanhúshönnun og efnisval flísa og gólfefna ásamt litum og efnisvali innréttinga. HAF stúdio hannaði útlit sýningaríbúða.

Skilalýsing

Skilalýsing Bjarkarholt 17-19

Sækja skilalýsingu
Myndir